andreaösp;*

Vendu þig á að heilsa vinum þínum með brosi, því þeir bera of miklar áhyggjur innra með sér til að bæta á sig þínum ;)

mánudagur, maí 01, 2006

ALLIR AÐ LESA =)


Vildi koma því á framfæri að ég er búin að eiga þessa síðu í EITT áááár:D:D Og ætla þá að byrja nýtt á með NÝJA síðu:D Ég er semsagt hætt með þessa!:D Allir að vera duglegir að kíkja á nýju síðuna mína..;**

RHCP - Venice Queen ;**


Ég vildi bara fá að vera með...:D Allir með einhverjar svona spurniningar..:O En jæja..=)
Ljót?
Vinaleg?
Þögul?
Hávær?
Feimin?
Skrýtin?
Sjálfselsk?
Villingur?
Brjálæðingur?
Sæt?
Vond?
Heimsk?
Vinur?
Meira en vinur?
Treystandi?
Leiðinleg?
Falleg?
Vitur?
Ruglandi?
Fyndin?

andreaösp;**

sunnudagur, apríl 30, 2006

The All American Rejects - I Can't Take It


Jæja þá er helgin búin eða svona tæknilega séð, frí á morgun eins og allir vita..;) En þessi helgi var bara fín..:D

Föstudagur: Fór í skólann og síðasti tíminn fyrir hádegi féll niður þannig ég var komin heim 11:15 það var yndislegt..:D Svo fór ég að pakka niður og svona því ég og Svanhildur vorum að fara inn á Akureyri klukkan 13:00..=) Svo þegar við komum inn á Akureyri fórum við nánast BEINT upp á vist en auðvitað BARA afþví ég var að drífa mig þá þurfti mamma að taka bensín :') og svo fara í sparisjóðinn..Hehe svo hérna drifum við okkur upp á vist og ég ætlaði að ná að segja hæ við Benjamín áður en hann færi því hann vaaar að fara heim til sín einmitt þegar ég var að koma bjáninn sjálfur! Svo hérna eftir að við vorum búnar að henda dótinu inn í herbergi upp á vist þá fórum við upp í skóla því Svanhildur þurfti að klára eitthvað íslensku verkefni fyrir klukkan fjögur það reddaðist allt saman, fegurðinn alveg að gera útaf við okkur inn í tölvustofunni...:$ hehe en ekkert meira um það!:D Svo eftir það allt saman fórum við að ná í sundföt og drifum okkur í sund með Adda,Hjalta&Elsu..:D Svo kom Rúnar í sund líka og svo var helling af fólki í sundi sem ég þekki..=) Svo um kvöldið fórum við Svanhildur,Addi,Hjalti&Sæþór í bíó á Scary Move 4 SNILLDAR mynd..;D Og það var fullur salur og maður var að segja hæ við aðra hverja manneskju þarna...!: Svo eftir bíóið röltuðum við upp á vist og fórum að hanga og láta okkur leiðast..jeiiijj! Svo var bara farið að sofa, eða sumir náðu að sofna..:') Svanhildur þú veist hvað ég
meina!:D

Laugardagur: vaknaði maður snemma, ég fór í sturtu og svo fórum við upp í Súper að kaupa eitthvað að borða..;) Svo bara vorum við Svanhildur svo þreyttar að við sofnuðum báðar eitthvað um tólf og vöknuðum svo eitthvað um tvö..! Svo fór hún í fermingarveislu og ég horfði á sjónvarpið og fór smá í tölvuna hjá Hjalta allan tímann.. Langaði bara að komast heim með þrjú ferju :') en það var víst ekki í boði..:( En lokins koms maður heim og þá fór maður að skipta um föt og svo aðeins í tölvuna oooog svo fórum við Gréta,Svanhildur&Unnur út á röltið..;) Þvílíkur mannskapur úti þetta kvöld, krakkar á línuskautum, 2 strákar á sæþotum svona léttum sæþotum!:D Svo bara helling af fólki á göngu..:D Líf í Hrísey..:D Enda allir sem eiga sumarhús hérna eru í eyjunni eða flestir..:D


Sunnudagur: í dag á svo að vera vöfflu kaffi upp í Hlein því fólkið í sumarhúsunum eru að bjóða okkur Hríseyingum í vöfflur og svona gotterí..:D Svo veit ég ekkert meira hvað gerist í dag...:/ Þannig ég ætla enda þetta í DAG =) Bið að heilsa ykkur;**

föstudagur, apríl 28, 2006

Athugið kæru lesendur..=)




Vildi minna ykkur á að ég er komin með nýja myndasíðu sem ég ætla vera dugleg við að setja inn nýjar myndir og svona flott..:D Endilega að kíkja á það sem komið er..;*






miðvikudagur, apríl 26, 2006

Edwin McCain - These Are The Moments


Hæj,hæj,hæj..:D:D Andrea er komin aftur... LOKSINS,LOKSINS..Og núna fara bloggin öll að koma aftur...Ahhhhh þetta er yndislegt alveg hreint að komast í tölvu aftur, ég er búin að vera tölvulaus í heilan MÁNUÐ, og ég lifi ennþá..:O En jæja núna ætla ég að segja ykkur hvað ég hef verið að gera án tölvunnar..JOY!:D

Síðasta vikan var frekar strembin og bara síðustu vikur allt á fullu á leiklistaræfingum og svona.. Svo frumsýndum við í Leikfélagi Hríseyjar nánara tiltekið Krafla á fimmtudaginn s.l og tókst sú sýning alveg rosalega vel engin texta klikk hjá okkur sem er náttúrulega dásamlegt. Svo eftir sýninguna var boðið upp á kaffi og vöfflur og svo tóku kossarnir og knúsin við, allir að þakka manni fyrir frábæra sýningu og segja til hamingju þó varst æðislegt og þetta rugl þið vitið. En ég slapp allavega við frunsuna..:D Hérna koma nokkrar myndir af sýningunni..:D

Svo var klappað og hneigt sig..:D Takk fyrir allir í Kröflu ;**

Svo um helgina var önnur sýning sem hefði geta verið betri en þannig er það nú bara önnur sýning er alltaf eitthvað misheppnuð en annars var þetta auðvitað bara gaman allt saman. Unnur systir mín hélt upp á afmælið sitt sama dag semsagt á laugardaginn, allir byrjuðu á að koma á sýninguna svo var farið heim og borðað pizzur og spjallað saman..=) Fórum í Buzz, Singstar og bara heeeelling skemmtilegt gert..=) Ég hef ekki skemmt mér svona vel leeengi enda vorum við Gréta,Þorri og Aldís baaara að dansa og dansa og syngja..

Unnur,Ásrún,Gréta og ég í góðum fýling að dansa...=)

Ég að syngja..Lalala..(8)

Jújú við vorum í hinum besta fýling þarna..:D

Gréta,ég&Svanhildur..:D

Ég&Fannar..:D Æskuvinir ;*

Gestur bangsímon, Pétur Stone og litla kvikindið! =)

Dj'inn í afmælinu hann Unnar Númi...;) Glæsilegur á græjunum..:D

Takk allir fyrir skemmtilegt kvöld..;***

Svo í dag er stór dagur..:D Þann 26 apríl fæddist stúlka sem fékk nafnið Unnur Inga.. Jújú systir mín góða..Orðin 17 ára gömul, úff það er veeerulega skrýtið, hún að fá bílpróf og svona..:O ahahah það er EKKI langt síðan þegar við vorum inn í herbergi ði barbie og playmó..:') en svona er þetta...:D Til hamingju elsku ástin mín.. Elska þig;**


Hérna er mín ástkæra systir með kærastanum sínum Stefáni :D

En jæja ætla ekkert að vera hafa þetta neitt lengra :D*
Ekki gleyma að commenta..:D:D

andreaösp;**

laugardagur, apríl 08, 2006

vesen!!

Jæja sæl og blessuð.. Þið verið að afsaka bloggleysið mitt en þannig er mál með vexti að tölvan okkar er ónýt..:/ og ég hef bara ekkert geta komist í tölvuna..=) Þannig ég veit ekki alveg hvenær næsta blogg kemur aftur aftur..:/ En ef þið saknið mín þá vitið þið númerið mitt ...=) ég er alltaf með símann á mér..:D Bæææjj ;**

mánudagur, apríl 03, 2006

Coldplay - Talk ;*


Jæja sæl og blessuð..;) Núna er ég enn eina ferðina enn komin heim frá Reykjavík...En tilgangurinn með þessari Reykjavíkurferð var sú að fara í fermingu til hennar Berglindar minnar ;** En haha ég verð nú að segja frá því, rétt fyrir veisluna þurfti ég að fara með ömmu og afa niður í smáralind að finna afmælisgjöf handa Árna jújú allt gékk það mjög vel svo þurfti að fara í blómabúðina þarna að kaupa blóm, ég var bara labba þarna í rólegheitum þegar einhver manneskja kemur og kitlar mig í mjöðmina, ég bara hver í ansk** lít við er þetta þá ekki kjáninn minn hún Heiðdís, váá langt síðan að maður hefur séð hana...:O En það var ekkert spjallað því við vorum báðar á hraðferð þannig við létum það vera að spjalla..Ég verð bara fara drífa mig til að kíkja í heimsókn til hennar á Akureyri hehe..:$ En svo mætti maður í veisluna...Glæsileg veisla þarna..! Hitta alla ættingjana og svona, það er náttúrulega alltaf gaman að sjá þau því maður sér þau nánast bara einu sinni á ári..:/ ekki gott það..:( Hérna koma svo nokkrar myndir úr veislunni..=)


Berglind,Gunnhildur&María litla..;) Fermingarbarnið og systur=)

Það er ekki alltaf gaman í þessum veislum, sumir lögðu sig bara..;)

Mamma&Vigfús Bjarki sæti frændi minn..;) Dýrka hann..;*

Andrea hvar er aspasinn? :')

Nýfædda frænka mín sem á að fara skíra um helgina..:D

Arna Rut frænka og Atli frændi..=)

Kata langa&mamma hehe..:')

Jújú þarna birtist lúðinn í veislunni og auðvitað að borða kökur...=)

Ég&Unnur..Orðnar freeekar þreyttar eftir þessa veislu, enda á heimleið þarna..;)

Eftir ferminguna fórum við mamma,Unnur og Árni í bíó á big mama's house 2 eða hvað sem hún heitir, snilld þessi mynd...:D Hittum Viktor þarna hehe alltaf hress sá náungi...Svo eftir bíóið var farið niður á laugarveg og rúntað niður hann og skoðað þessar búðir þarna, í sumar ætla ég POTTÞÉTT að labba niður laugaveginn og vera með PENING á mér því það er óendalega flottar búðir þarna Svanhildur það er svona PUMA búð þarna..:D:D Mæli með því að þú kíkir á hana sko..;) Ég&Árni rooosalega gaman að bíða eftir mömmu. Við héldum að hún ætlaði að kveðja alla í húsinu hún var svo lengi á leiðinni út...!

Ooohh ég á svo sætan bróðir..^o)

En jájá svo var náttúrulega verslað eitthvað smávegis í Vero Moda og Zöru hehe..Okey báðir pokarnir voru trooooð fullir..:$ Svo í gær á sunnudeginum var lagt í hann heim en fyrst var aftur komið við hjá Berglindi því við áttum að taka smá nesti af kökum fyrir frænku okkar á Blönduósi sem því miður komst ekki því hún var í aðgerð og var mikið slöpp, þá komum við náttúrulega með kökur og gotterí handa þeim...=) Svo varð ipodinn minn batterýslaus og við ekki einu sinni komin á BLÖNDUÓS...FLOTT...!!! Þannig ég lærði bara alla leiðina, las og las í enskubókinni svo afþví við náðum ekki ferjunni þurftum við að bíða á Akureyri í 2 klukkutíma, þannig þá var bara farið á Crown og fengið sér að borða svo fór ég heim til Unnar til að halda áfram að læra...Svo loksins komst maður heim og þá fór ég BEINT í sturtu, og ætlaði að halda áfram að læra en þá hennti ég bara bókinni frá mér og lagðist upp í rúm og kveikti á sjónvarpinu og fór svo að sofa..LOVELY!

Svo í dag mætti maður hress og kát í skólann, og það fyrsta sem ég fæ að heyra þegar ég geng inn í stofuna er; við erum að fara læra glímu í dag? ég hugsaði í smá stund bíddu er 1 apríl ennþá eða? en neinei svo var þetta allt saman satt og mætir ekki Lárus glímukappi og fræðir okkur um glímu, rooosalega spennandi allt saman jújú..*hóst* svo var farið framm á sal og við hituðum upp með að hlaupa e-a 5 hringi og 10 armbegjur og 20 magaæfingar og 5 eitthvað og 12 bakflettur eða hvað þetta nú heitir..Svo lærði maður að glíma eins og alvöru kappi...Sjuuuure!! Svo var skipt í 2 lið og það var keppni, okkar lið féll nú strax því við fengum sko erfiða mótherja..Paula, Ninja og Gréta...Ég var að míga á mig að horfa á þær fyrir framan mig og vonaði að ég fengi ekki neina af þeim á móti mér, ég fékk svo Grétu var reyndar búin að fá 3 aðra úr þeirra liði en náði þeim öllum niður, en að horfa á Grétu fyrir framan mig var hræðilegt, ég var að fara glíma við Grétu mína..Fyrst áttum við að takast í hendur og það byrjaði ekkert vel hún byrjaði að meiða mig þá..:') Gréta mín þú átt að vera GÓÐ við Andreu þína..:'( Svo byrjaði tíminn og það var ekki liðinn 1 sekúnda af tímanum þegar hún var búin að skella mér niður..Öss ég átti nú alveg von á því að ég myndi allavega ekki ná henni niður..:) Svo sast ég bara niður í Valhöllina hjá þeim sem voru dottnir úr og fegin að vera búin að þessu haha, en Gréta mín ég elska þig samt :D;*** Svo fór maður bara heim, fór náttúrulega STRAX í tölvuna, hef ekki farið í tölvuna í 4 daga,, vááá dugleg!:D hehehe.. Heiðar ég lifi ENN..?! : En svo í kvöld þá ætlum við mæðgurnar að fara á páska bingó og auðvitað hittir maður alla glímukappana þarna líka hehe!:D

Ég vona að ég fái allavega EITT páskaegg í kvöld..:D Ég er alltaf svo heppin í bingó..;) Riiiight!

Svo á morgun fer ég til TANNLÆKNIS, og þeir sem hafa spangir eða hafa verið með spangir vita að það er alls ekki draumurinn að þurfa fara til tannlæknis..En jújú þannig er mál með vexti að ég var KÝLD í dag af Rebekku Rún Helgadóttur... Frábært Rebekka vel gert..klapp,klapp.. Hún var sko besta vinkona mín þennan dag... Já nei ég læt það vera.. En hún kýldi mig samt bara óvart ég ætla koma því fram hehe hún var eitthvað hoppandi og skoppandi inn í stofunni, og þið vitið alveg hvernig hún er þið sem þekkið hana,, en jámm ég var að fara labba inn í stofuna og fæ allar þessar seiflur framan í mig..:O Og það losnuðu einhverjar teygjur og vír! GLÆSILEGT.. Ný strekking á morgun, ný búin að jafna mig á hinni..! En svona er þetta bara víst!:(

Lífið leikur ekki alltaf við mann..;)

andreaösp;**


þriðjudagur, mars 28, 2006

Sverrir Bergann - Án þín ;*


Sæl og blessuð..!;) Heyrðu ég ætla nú ekki beinlínis að koma með eitthvað blogg í dag.. En þannig er mál með vexti að ég og Guðný vorum að skoða gömul skólablöð upp í skóla og eins og flestir Hríseyingar eiga vita þá er ég að tala um skólablaðið Hrís sem er búið til af okkur nemendum í Grunnskólanum í Hrísey! Ooog í þessu blaði eru sett ljóð og sögur og svona eftir nemendur skólans og ég fann nokkur snilldar ljóð sem ég vildi koma hérna á framfæri..Við erum svo miklir listamenn í okkur eða listamenn má kannski segja við erum svo ljóðræn haha:D En jæja ætla skrifa hérna nokkur ljóð eftir Hríseyinga og takiði endilega eftir nöfnunum og í hvaða bekk þau voru þegar þetta var samið..:')
Bauja
í gær sá pabbi baujubelg í fjörunni heima.
Og í morgun fann ég svo heila bauju.
Vindurinn og straumurinn báru þetta hingað.
Heiðar Ingi 3.bekk
Heiðar minn glæsilegt ljóð hjá þér ;)
Mynd af mér og honum haha:D

Ég á
Ég á lítin kött
sem fer út í htt
Ég kann að reikna
en ekki teikna.
Ég á brúðu
en ekki lúðu.
Ég á bíl
en ekki fíl.
Ég borða fisk
en ekki disk.
Ég fæ koss
en ekki foss.
Svanhildur 4.bekk
Nau,nau Svanhildur mín klár í ríminu..=) Dugleg delpa!:D
Kemur mér á óvart þarna..=)
Sólin
Sólin er falleg
sólin er skær á sumrin
kemur sólin þá verður
hlýtt í bæ.
Beinta 3.bekk
Glæææsilegt Beinta mín, er ljóðabókin á leiðinni út eða?;)
Beinta er þessi í græna ;)
4 bekkur
Andrés er sá gemlingur sem aldrei róast neitt,
oft í vondu skapi, en þó ágætur er.
Jón er sá gæi sem oft í fótbolta er,
ekki eru þrusur hans góðar.
Svanhildur er sú stelpa,
sem stundum stressuð er.
Ella mikill prakkari er,
eins og strákarnir.
Birna er sú stelpa,
sem stundum stjórnsöm er.
Unnur er nú Ellu lík,
oft með strákum er.
Unnur Inga 4.bekk
Hahahahaha ég hló mikið af þessu ljóði :')
Krókudíllinn
Tveir krókódílar sáu
mann á brimbretti.
Þá sagði annar; Það munar
ekki um það. Maður er
bara farin að fá matinn
á disknum hérna.
Unnar Númi 5.bekk
Jáá núna skil ég ruglið í honum í dag..Hann fæddist svona=)
Ljóð um drullu
Hér er ég í sullu bullu drullu
og síðan komu Unnar og Alli
en eftir svona hálftíma komu Fannar og Palli.
Við hefðum aldrei lent í öðru eins að rífast
mikið var ekki til neins.
En ég og Unnar og Allir fórum heim
og fannar og Palli ætluðu sömu leið
en þeir viltust og fóru út í geim.
Og þeir heyrðu mikið gól
og skruppu svo út á sól
en þá hittu þeir
Narfa sem ætlaði
út á tunglið.
Olli (er ekki viss með bekkin en eitthvað í kringum 5-7 bekk)
Svaka ljóðskáld þarna á ferðinni ;)
andreaösp;**